Vorpróf vikuna 4. - 8. apríl
Vorpróf í hljóðfæraleik, söng og tónfræði verða í vikunni 4. - 8. apríl. Nemendur fá upplýsingar um próftíma og verkefni hjá kennurum sínum.
Fyrirkomulag kennslu í prófviku verður sem hér segir:
- Hljóðfærakennsla/söngkennsla þeirra nemenda sem taka vorpróf fellur niður nema að kennarar hafi sent upplýsingar um annað.
- Kennsla fer fram hjá þeim nemendum sem ekki taka vorpróf en stefna að áfangaprófum/tónleikaprófum í vor eða geta af einhverjum ástæðum ekki tekið vorprófin fyrr en síðar á skólaárinu.
- Athugið að ekki verður í öllum tilfellum hægt að kenna samkvæmt stundaskrá og munu þá kennarar láta nemendur sína vita af nýjum tímasetningum.
Kennsla fer fram í hliðargreinum í framhaldsáföngum, samspilum, blásarasveitum og strengjasveitum samkvæmt stundaskrá.
Suzukitímar verða samkvæmt stundaskrá nema kennarar hafi sent upplýsingar um annað.
Nemendur í blásarafornámi og gítarfornámi taka ekki vorpróf og er kennsla hjá þeim samkvæmt stundaskrá.