Foreldraviðtöl 16. - 20. janúar
13.01.2023 14:56
Dagana 16. - 20. janúar næstkomandi verða foreldraviðtöl í Tónlistarskólanum fyrir foreldra/forráðamenn nemanda yngri en 18 ára.
Tilgangur foreldraviðtalanna er að skapa tengsl milli forráðamanna nemenda og kennara þeirra, fara yfir námsframvinduna, gildi heimaæfinga og svara spurningum um tónlistarnámið.
Kennarar munu verða í sambandi við foreldra/forráðamenn um tíma og staðsetningu viðtalanna.