Blásaradeild
Hljóðfæri tréblásaradeildar eru þverflauta, klarínett, saxófónn, óbó og fagott
Hljóðfæri málmblásarasdeildar eru kornett, trompet, horn, baritónhorn, básúna og túba
Hægt að hefja nám á þessi hljóðfæri á aldrinum 7-8 ára en það er nokkuð háð stærð nemenda og þroska.
Samspil í blásarasveitum og öðrum samleikshópum er skylda og skemmtilegur hluti af náminu.
Skólinn leigir út hljóðfæri fyrstu árin, en síðan er ætlast til þess að nemandinn eignist sitt eigið hljóðfæri.
Nám í tónlistarskóla er að stórum hluta byggt á heimanámi. Æfa þarf daglega en lengd æfingatíma er í samráði við kennara. Nemandinn þarf að geta æft sig í ró og næði. Gert er ráð fyrir að nemandi eignist nótur og nótnastand.
Stuðningur heima fyrir er nauðsynlegur í tónlistarnáminu. Öll hvatning er góð og getur skipt sköpum í náminu. Samstarf foreldra og kennara er einnig mjög mikilvægt og eru foreldrum hvattir til að hafa samband við kennarann utan hefðbundinna foreldraviðtala ef spurningar vakna.