Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Píanódeild

 
Hægt er að hefja hefðbundið nám á píanó frá  7-  8 ára aldri.
 
Nauðsynlegt er að píanó sé til á heimilinu, hljómborð gerir ekki sama gagn þar sem ásláttur og tónblær er allt annar. Mælt er með því að til sé stillanlegur píanóstóll á heimilinu. Við kaup á hljóðfæri er hægt að hafa samráð við hljóðfærakennarann.
 
Nám í tónlistarskóla er að stórum hluta byggt á heimanámi.  Æfa þarf daglega en lengd æfingatíma er í samráði við kennara.  Nemandinn þarf að geta æft sig í ró og næði. Gert er ráð fyrir að nemandi þurfi að eignast nótnabækur.
 
Stuðningur heima fyrir er nauðsynlegur í tónlistarnáminu.  Öll hvatning er góð og getur skipt sköpum í náminu.  Samstarf foreldra og kennara er einnig mjög mikilvægt og eru foreldrum hvattir til að hafa samband við kennarann utan hefðbundinna foreldraviðtala ef að spurningar vakna.
 


Mennta- og menningarmálaráðuneytið - námskrá

 


 

Hafðu samband