Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Rytmadeild

 

Í rytmadeild er kennt á rafgítar, rafbassa, kontrabassa, píanó og trommur. 

 
Alla jafna hefja nemendur nám um 11 – 12 ára aldur en það er þó einstaklingsbundið.
 
Nemendur taka þátt í  hljómsveitum og öðrum samleikshópum þegar þeir hafa aldur og þroska til. Þetta er skylda og er skemmtilegur hluti af náminu.
 
Nám í tónlistarskóla er að stórum hluta byggt á heimanámi. Æfa þarf daglega en lengd æfingatíma er í samráði við kennara. Nemandinn þarf að geta æft sig í ró og næði. Gert er ráð fyrir að nemandi þurfi að eignast nótur og nótnastand.
 
Stuðningur heima fyrir er nauðsynlegur í tónlistarnáminu.  Öll hvatning er góð og getur skipt sköpum í náminu.  Samstarf foreldra og kennara er einnig mjög mikilvægt og eru foreldrum hvattir til að hafa samband við kennarann utan hefðbundinna foreldraviðtala ef að spurningar vakna.

 

 Mennta- og menningarmálaráðuneyti - námskrá

Hafðu samband