Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Slagverksdeild

 

Í námi á trommur og slagverk er kennt á trommusett, hljómborðsslagverk (marimbu og víbrafón) og fjölmörg önnur slagverkshljóðfæri

Nemendur kynnast fjölbreyttri tónlist og ólíkum stílum í gegnum trommu- og slagverksnámið.
 
Alla jafna hefja nemendur nám um 9 ára aldur en það er þó einstaklingsbundið.
 
Nemendur taka þátt í hljómsveitum og öðrum samleikshópum þegar þeir hafa aldur og þroska til. Þetta er skylda og er skemmtilegur hluti af náminu.
 
Nám í tónlistarskóla er að stórum hluta byggt á heimanámi. Æfa þarf daglega en lengd æfingatíma er í samráði við kennara. Nemandinn þarf að geta æft sig í ró og næði. Gert er ráð fyrir að nemandi þurfi að eignast nótur og nótnastand.
 
Stuðningur heima fyrir er nauðsynlegur í tónlistarnáminu. Öll hvatning er góð og getur skipt sköpum í náminu. Samstarf foreldra og kennara er einnig mjög mikilvægt og eru foreldrar hvattir til að hafa samband við kennarann utan hefðbundinna foreldraviðtala ef að spurningar vakna.

 

 Mennta- og menningarmálaráðuneytið - námskrá

 
 
Hafðu samband