Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Strengjadeild

 
 

Til strengjahljóðfæra teljast fiðlur, víólur, selló og kontrabassar. 

 
Hægt er  að hefja hefðbundið nám á strengjahljóðfæri frá 7-  8 ára aldri en er þó alltaf matsatriði og fer eftir stærð og þroska viðkomandi.
 
Skólinn leigir út hljóðfæri þangað til að nemandinn þarf fulla stærð, en nemendur bera sjálfir kostað af strengjum og axlarpúðum.
 
Nemendur taka þátt í  hljómsveitum og öðrum samleikshópum þegar þeir hafa aldur og þroska til.  Þetta er skylda og er skemmtilegur hluti af náminu. 
 
Nám í tónlistarskóla er að stórum hluta byggt á heimanámi. Æfa þarf daglega en lengd æfingatíma er í samráði við kennara. Nemandinn þarf að geta æft sig í ró og næði. Gert er ráð fyrir að nemandi þurfi að eignast nótur og nótnastand.
 
Stuðningur heima fyrir er nauðsynlegur í tónlistarnáminu.  Öll hvatning er góð og getur skipt sköpum í náminu. Samstarf foreldra og kennara er einnig mjög mikilvægt og eru foreldrum hvattir til að hafa samband við kennarann utan hefðbundinna foreldraviðtala ef að spurningar vakna.
 
Mennta- og menningarmálaráðuneytið - námskrá
Hafðu samband