Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Gjaldskrá

Gjaldskrá fyrir skólaárið 2023 -2024 


Gjaldskrá Tónlistarskóla Garðabæjar

1. gr.

Skólagjöld Tónlistarskóla Garðabæjar eru innheimt samkvæmt lögum um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985. Skólagjöldum er ætlað að standa undir öðrum kostnaði við skólareksturinn en launakostnaði kennara og skólastjóra.

2. gr.

Skólagjöld skólaárið 2023 - 2024 eru eftirfarandi:

Blásarafornám  / gítarfornám                                         kr. 54.000
Hljóðfæranám – grunn og miðstig, fullt nám                kr. 124.600
Hljóðfæranám – framhaldsáfangi, fullt nám                 kr. 136.900 
Söngnám – grunn og miðáfangi, fullt nám                    kr. 124.600
Söngnám – framhaldsáfangi                                           kr. 136.900
Suzuki nám                                                                        kr. 110.400
Hljóðfæraleiga                                                                   kr. 13.400

3. gr.

Samningur skal gerður við nemendur og forráðamenn um hljóðfæraleigu þar sem m.a. eru skilmálar um meðferð hljóðfæra.

4. gr.

Í þeim tilvikum sem systkin yngri en 18 ára stunda nám við skólann skal veittur systkinaafsláttur fyrir eldra systkin eða eldri systkin. Systkinaafsláttur skal nema 20% fyrir annað systkin og 30% fyrir þriðja systkin.

Við ákvörðun afsláttar skal miða við fjárhæð gjalda þannig að það systkin sem greiðir næst mest skal fyrst njóta afsláttar o.s.frv.

5.gr.

Nemandi sem stundar nám á fleira en eitt hljóðfæri skal veittur 20% afsláttur frá námsgjaldi á annað hljóðfæri.

6. gr.

Gjalddagar skólagjalda skulu vera 1. október, 1. nóvember og 1. desember. Skólagjöld eru innheimt í gegnum Sportable.

7. gr.

Gjaldskrá þessi er samþykkt á fundi bæjarráðs Garðabæjar 15. júní  2023 og gildir frá og með skólaárinu 2023-2024.

 
 
Hafðu samband