Tónlistarskóli Garđabćjar var stofnađur 1964 og hét ţá Tónlistarskóli Garđahrepps. Hann var upphaflega rekinn af Tónlistarfélagi Garđahrepps sem stofnađ var sama ár. Ađalhvatamenn ađ stofnun skólans voru Helgi K. Hjálmsson, Vilbergur Júlíusson skólastjóri barnaskólans, sr. Bragi Friđriksson og Ólafur G. Einarsson ţáverandi sveitastjóri. Skólastjóri var ráđinn Guđmundur Norđdahl og gegndi hann ţví embćtti til ársins 1975. Fyrsta skólaáriđ voru 30 nemendur og 3 kennarar viđ skólann. Kennsla fór ađ mestu fram í barnaskólanum, en einnig á heimilum kennara og skólastjóra. Strax í upphafi var stefnan tekin á öflugt lúđrasveitastarf auk hljóđfćranáms á fiđlu, selló, gítar og píanó. Smám saman fjölgađi nemendum og kennslugreinum. Skólinn bjó lengi vel viđ ţröngan kost í húsnćđismálum sem kom ţó ekki niđur á vinsćldum hans og góđum árangri. Áriđ 1975 tók Garđabćr viđ rekstri skólans og ţá var jafnframt ráđinn nýr skólastjóri Alma E. Hansen og gegndi hún ţví starfi til ársins 1984. Á ţessum árum hét skólinn Tónlistarskólinn í Görđum. Áriđ 1984 tók Gísli Magnússon viđ stöđunni og sama ár var nafni skólans breytt í núverandi horf. Gísli gegndi stöđunni til áramóta 1999-2000, en ţá var Agnes Löve ráđin skólastjóri. Á ţeim 45 árum sem skólinn hefur starfađ hafa 47 nemendur lokiđ námi međ sjálfstćđum tónleikum . Flestir hafa lokiđ burtfararprófi í söng eđa 27, 15 í píanóleik, einn á selló, einn á fiđlu, tveir á gítar og einn á saxófón. Haustiđ 1999 flutti skólinn í nýtt og glćsilegt hús ađ Kirkjulundi 11 og er hann nú loks undir einu ţaki. Nemendur eru í ár 480. Skólinn skiptist í 4 deildir, ţ.e. rekstrardeild, píanódeild, söng-, tónmennta- og slagverksdeild, blásara- og strengjadeild.Mikil áhersla er lögđ á samleik og samsöng nemenda og starfandi eru blásarasveitir og strengjasveit, ásamt ýmsum samspilshópum. Međal verka sem nemendur hafa fćrt upp er ćvintýraóperan Hnetu-Jón og gullgćsin eftir Hildigunni Rúnarsdóttur og óperan Brúđkaup Figarós eftir W. A. Mozart. Í tengslum viđ vígslu nýja skólahússins í desember 1999 gaf skólinn út sinn fyrsta geisladisk međ leik nemenda.
|